Nýnemaball FÁ og Tækniskolans 2017

HVAÐ ER AÐ FRÉTTA ?!
ÆTLAR ÞÚ EKKI AÐ MÆTA Í ÞESSA BOMBU?
TRYGGÐU ÞÉR MIÐA STRAX – ÞEIR SEM FÓRU Í NÝNEMAFERÐINA FÁ FRÍTT INN!

MIÐASALAN FER FRAM HÉRNA!

Fram koma Dj. Dóra, Jói Pjé, Króli og Joey Christ.
Miðaverð innan NFFÁ og NST er 2500kr
Miðverð utan skóla er 3000kr
Miðasala fer fram á netinu.

Nýnemaferð Tækniskólans

Þann 14-15. september 2017 verður farið í hina árlegu nýnemaferð Tækniskólans. Ferðinni er heitið á gistiheimilið Art Hostel á Stokkseyri (Hafnargata 9). Við gistiheimilið er sundlaug og sjoppa.

Lagt verður af stað frá Tækniskólanum: Hafnarfirði kl. 15:30 Skólavörðuholti kl. 16:00. Gist verður í eina nótt og lagt verður af stað heim upp úr hádegi daginn eftir. Áætluð heimkoma er klukkan 13:00. Stjórn NST sér fyrir kvöldvöku, sundlaugarpartýi, grilli o.fl. skemmtilegu sem allt er gert til þess að nýnemarnir kynnist betur hver öðrum sem og nemendafélaginu. Þetta er gert í von um að næstu dagar, vikur, mánuðir og ár verði sem allra eftirminnilegust og skemmtileg.

Ferðin er með öllu áfengis og vímuefnalaus og verða starfsmenn skólans með í för en hægt verður að hafa samband við Þorvald Guðjónsson, félagsmálafulltrúa (S. 698-3857) meðan á ferðinni stendur. Ef einhverjar spurningar vakna varðandi ferðina má hafa samband við Davíð Snæ, formann NST (S. 821-4331) eða með tölvupósti á ([email protected]).

Nemendafélagið mun síðan bjóða upp á pylsur, grænmetispylsur og gos um kvöldið en nemendur þurfa sjálfir að taka með sér morgunverð og snarl. Taka þarf með sér dýnu, svefnpoka og sundföt og að sjálfsögðu hlý föt í samræmi við veður. Þægilegt er að nemendur taki farangurinn með sér í skólann en hægt verður að geyma hann í stofum meðan nemandi sækir kennslustundir. Verð fyrir ferðina er 4500 krónur og með fylgir miði á ballið sem er 21. september.

Koma þarf með leyfisbréfið í ferðina. Með undirskrift forráðamanns er nýnema gefið leyfi til þess að fara í nýnemaferðina. Ef nemandi verður uppvís að broti á skólareglum verða forráðamenn að sækja nemandann eða hann sendur heim á eigin kostnað.

Miðasala fer fram á www.nst.is/midasala

Nýnemaferð Tækniskólans

Bingó kvöld 23. mars

Fimmtudaginn 23. mars nk. ætlum við að vera með Bingó kvöld í Tækniskólanum Hafnarfirði
Húsið opnar kl. 19:00.
Spjaldið kostar 300 kr. og er fjölnota 🙂
Pizzur verða seldar á staðnum á lágu verði!
Sjáumst hress fimmtudaginn 23. mars.