SUMARBALL
FÁ – BORGÓ – FMOS – TÆKNÓ – FB
Fimmtudaginn 11. apríl verður Sumarball FÁ – BORGÓ – FMOS – TÆKNÓ – FB, haldið í PORT Reykjavík – eða Kolaportinu Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík.
Húsið opnar kl. 22:00 en ekki er hleypt inn á ballið eftir 23:00. Ballinu lýkur kl. 01:00.
Fram koma: DJ Gugga, Tónhylur, Ezekiel, Young Nigo, Aron Can & Daniil
MIÐASALA – ARMBÖND AFHENT Í NÆSTU VIKU
Miðasölu fyrir nemendur Tækniskólans má nálgast hér: https://yess.is/e/nft/Sumarball%202024. Mánudaginn 8. apríl hefst miðasala fyrir gesti úr öðrum framhaldsskólum en Tækniskólanemendur geta boðið einum gesti með sér. Gestur getur ekki keypt miða nema með kennitölu þess nemanda sem býður honum með. Kennitöluna skráir gestur við miðakaup. Miðaverð er 4.500 kr. fyrir nemendur FÁ, Tækniskólans, FB, FMos og Borgarholtsskóla en 5.500 kr. fyrir aðra. Takmarkaður fjöldi miða er í boði og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Hér er hlekkur á miðasölu fyrir utanskóla eins má fylgjast með á Instagram reikningi NST (nstskoli) og á vefsíðunni okkar nst.is.
EDRÚPOTTUR – ölvun ógildir miðann!
NST mælir með því að þú upplifir lífið edrú. Því fylgja engir gallar, bara kostir. Það má heldur ekki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á viðburðum skólans. Slepptu öllu ölæði og taktu meðvitaða ákvörðun um að vera án vímuefna ♠ Snillingar sem blása í áfengismæli komast í edrúpottinn og geta unnið peningaverðlaun. Einnig er vert að nefna að á ballinu er ekki leyfilegt að koma inn með tóbak, nikótínpúða eða rafrettur. Allur óheimill varningur verður gerður upptækur og honum fargað.
ALLT OFBELDI ER ÓLÍÐANDI
Á viðburðum NST er allt ofbeldi ólíðandi. Það þýðir EKKERT umburðarlyndi fyrir t.d. móðgandi eða særandi athugasemdum um útlit fólks, hómófóbíu eða kynþáttafordómum. Öll hegðun og áreitni sem skapar ógnvekjandi eða fjandsamlegt umhverfi verður ekki liðin.
Sjáumst á ballinu!