NST óskar eftir framboðum í stjórn NST 2024-2025!
Stjórn NST samanstendur af 9 nemendum skólans. Kosið er sérstaklega í embætti forseta, varaforseta og gjaldkera. Þar að auki geta nemendur boðið sig fram í embætti meðstjórnenda en fimm meðstjórnendur eru í stjórn. Í september leitar stjórn eftir níunda aðilanum sem er nýnemafulltrúi. Í viðhengi er listi yfir hlutverk hvers embættis.
Ég vek athygli á óskað verður eftir framboðum í nefndir og stjórn félaga af nýrri stjórn þegar hún tekur við.
Framboðum skal skila í þetta skjal – Þar má skoða verkefni stjórnar og kosningareglur.
Lokað verður fyrir framboð sunnudaginn 21. apríl kl. 16:15. Kosningar fara fram á Innu dagana 22.–24. apríl.