💿 Frestun á Y2K ballinu

Y2K ballinu, sem átti að fara fram í Gamla bíó þann 6. nóvember, hefur verið frestað.
Ný dagsetning verður auglýst síðar ✨

Þau sem keyptu miða hafa þegar fengið endurgreiðslu, en athugið að það getur tekið nokkra virka daga fyrir upphæðina að birtast á kortinu ykkar.

Takk fyrir skilninginn – við hlökkum til að sjá ykkur þegar Y2K ballið snýr aftur 💿


Miðasala

🎟️ Miðaverð fyrir Tækniskólanema: 4.990 kr.
🔗 INNANSKÓLA – Hlekkur á miðasölu

Viltu bjóða gesti?

Nemendur geta boðið nemendum úr öðrum framhaldsskóla að kaupa sér miða. Gestir þurfa að skrá kennitölu Tækniskólanemenda sem býður þeim við miðakaup.

🔗UTANSKÓLA – Hlekkur á utanskólamiðasölu
💵 Verð fyrir gesti: 5.990 kr.


Öryggi og umsjón

Á ballinu verður öflug öryggisgæsla frá GO öryggi, auk heilbrigðisstarfsfólks í sjúkraherbergi á staðnum.
Foreldrum og forsjáraðilum er eindregið bent á að sækja börn sín eftir ballið.

Á ballinu er ekki leyfilegt að koma með:
🚫 Tóbak, nikótínpúða, rafrettur
🚫 Vökva (t.d. ilmvatn eða drykki) – öll slík vara verður gerð upptæk og fargað


Edrúpottur og ábyrg hegðun

NST hvetur öll til að mæta edrú og taka þátt í jákvæðri stemningu. Þau sem mæta edrú og blása í mæli fara í edrúpottinn, með möguleika á peningaverðlaunum!

🚫 Ölvun ógildir miðann.


Ofbeldi með öllu ólíðandi

Á viðburðum NST er allt ofbeldi ólíðandi. Það þýðir EKKERT umburðarlyndi fyrir t.d. móðgandi eða sær­andi athuga­semdum um útlit fólks, hómó­fóbíu eða kynþátta­for­dómum. Öll hegðun og áreitni sem skapar ógn­vekj­andi eða fjand­sam­legt umhverfi verður ekki liðin.

Search

Popular Posts

  • Árshátíð Tæknó X MH
    Árshátíð Tæknó X MH

    Þann 12. febrúar er árshátíð Tækniskólans og MH. Árshátíðin verður haldin í Kolaportinu þar sem hinir ýmsu listamenn stíga á svið. Húsið opnar kl 22:00 en ballinu lýkur kl 01:00. Þemað er „Royal“ og það er gaman ef þið klæðið ykkur í takt við það en fyrst og fremst skiptir máli að líða vel! ATH!…

  • Gettu bEtur prufur!

    📚 Gettu betur – Tækniskólinn Tækniskólinn tekur þátt í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna sem sýnd er á RÚV.Við leitum að öflugum einstaklingum til að keppa fyrir hönd skólans skólaárið 2026–2027. ✍️ Hvernig virkar þetta? 📈 Undanfarin ár hefur Tækniskólinn verið í mikilli sókn í Gettu betur – nú er tækifærið til að verða hluti af…

  • Nýnemaball nst 10.september

    Þann 10.september er Disco nýnemaball NST en það verður haldið í Iðnó og hurðin opnast kl 22:00. Izleifur, Ragga Hólm, Aron Kristinn og Issi stíga svið. Ölvun ógildir miðann. Innanskólamiðasala: https://item.salescloud.is/?uuid=2686aa64-b6ad-4527-a29c-782a1f92ca17&channel=fb23b405-ac2b-4a87-ba54-a1a66e531f59&organization=c4c097ac-f400-4325-a2c8-a640fd527ef1&lang=is&time=1788433969614 Utanskólamiðasala: https://item.salescloud.is/?uuid=2686aa64-b6ad-4527-a29c-782a1f92ca17&channel=3ff6f746-2479-41db-9a2d-bb9180c1fd03&organization=c4c097ac-f400-4325-a2c8-a640fd527ef1&lang=is&time=1788792425323

  • Nýnemakvöld á Háteigsvegi 2.september!
    Nýnemakvöld á Háteigsvegi 2.september!

    Miðviku­daginn 2. sept­ember verður sér­stakt nýnem­a­klúbba­kvöld haldið í Tækniskólanum á Háteigs­vegi frá kl. 17:00-19:00. Á kvöldinu fá nýnemar tæki­færi til að kynna fjöl­breytt klúbbastarf skólans, en klúbba­kvöld eru haldin alla miðviku­daga frá kl. 17:00 – 21:00. Full­trúar nem­enda­sam­bands Tækni­skólans, NST, verða einnig á staðnum og hægt verður að skrá sig í nýnemaviðtöl til umsóknar um…

Categories