Nýnemakvöld á Háteigsvegi 2.september!

Miðviku­daginn 2. sept­ember verður sér­stakt nýnem­a­klúbba­kvöld haldið í Tækniskólanum á Háteigs­vegi frá kl. 17:00-19:00.

Á kvöldinu fá nýnemar tæki­færi til að kynna fjöl­breytt klúbbastarf skólans, en klúbba­kvöld eru haldin alla miðviku­daga frá kl. 17:00 – 21:00. Full­trúar nem­enda­sam­bands Tækni­skólans, NST, verða einnig á staðnum og hægt verður að skrá sig í nýnemaviðtöl til umsóknar um að gerast nýnem­a­full­trúi NST.

Boðið verður upp á nammi, snakk og gos. Við hvetjum nýnema til að mæta, kynna sér starfið og eiga skemmti­lega kvöld­stund með sam­nem­endum.

Öll vel­komin!

Search

Categories