Árshátíðarmatur Tækniskólans 2026!

, ,

Kæru nemendur þann 12.febrúar er árshátíð Tækniskólans og MH. Ballið byrjar kl 22 en Nemendasamband Tækniskólans, NST, heldur kvöldverð áður en ballið byrjar!

Maturinn byrjar kl 19:00 í matsal nemenda á Skólavörðuholti. Hamborgarabúlla Tómasar sér um veitingarnar en einnig verður í boði eftirréttur. Það er létt dagskrá yfir kvöldið á borð við pub quiz, tónlist, spil og snarl en þetta er einmitt kjörið tækifæri til að kynnast fleirum og peppa sig í gang fyrir árshátíðina!

ATH! sendið póst á [email protected] varðandi ofnæmi eða aðrar séróskir um fæði. Hlökkum til að sjá ykkur!!

Miðasala í matinn fer fram hér: https://item.salescloud.is/?uuid=98c3d9b5-5fdc-420b-8eda-2f877fb8ac5d&channel=fb23b405-ac2b-4a87-ba54-a1a66e531f59&organization=c4c097ac-f400-4325-a2c8-a640fd527ef1&lang=is&time=1770799588867

A mature king feasting alone in a banquet hall

Search

Categories