Því Bjartur okkar Sigurjónsson, nemandi á tölvubraut, syngur fyrir hönd skólans í keppninni með lagi Maggie Jean Martin, Never blue. Bjartur er ekki bara með bjarta og fallega rödd heldur er hann nýkrýndur Íslandsmeistari Tækniskólans í forritun. Hvílíkur talent!
Samband íslenskra framhaldsskólanema heldur Söngkeppni framhaldsskólanna laugardaginn 1. apríl kl. 19.00. Miða á keppnina má nálgast hér en hún er haldin í Hinu Húsinu og verður jafnframt streymt beint á Stöð2 Vísi.
Dómarar eru Lilja Alfreðsdóttir menningar- og viðskiptaráðherra, Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður, Saga Matthildur sigurvegari Idol 2023 og Hildur Kristín Stefánsdóttir framleiðandi og tónlistarkona.
Dómarar ráða ekki einir úrslitum því símakosning hefur vægi á móti atkvæðum dómnefndar. Símanúmer keppenda Tækniskólans er 900-9118.
Áfram Bjartur!