Opið er fyrir framboð til stjórnar- og nefndarsetu NST fyrir skólaárið 2022-2023. Lokað verður fyrir framboð 8. apríl kl. 14:00.
Kosniungar fara fram á innu dagana 25.-28. apríl.
NST óskar eftir framboðum til stjórnar og nefndarsetu fyrir næsta skólaár. Skv. lögum NST verða eftirfarandi fulltrúar kjörnir í apríl:
- Formaður
- Formaður er talsmaður stjórnar út á við og sker formaður úr um niðurstöður kosninga þar sem ekki næst meirihlutasamþykki stjórnar.
- Varaformaður (formannsframbjóðandinn sem fær næst flest atkvæði)
- Varaformaður er staðgengill formanns og ritara séu þeir ekki á staðnum og er einnig hagsmunafulltrúa nemenda.
- Ritari
- Ritari sér um að rita fundargerðir fyrir alla fundi NST.
- Fulltrúi nemenda á Háteigsvegi
- kjörinn af nemendum á Háteigsvegi
- Fulltrúi nemenda í Hafnarfirði
- kjörinn af nemendum í Hafnarfirði
- Fulltrúi nemenda á Skólavörðuholti
- kjörinn af nemendum á Skólavörðuholti
Einnig verður kosið í eftirfarandi nefndir:
- Skemmtinefnd
- ber ábyrgð á skipulagningu skemmtiviðburða s.s. böll o.fl.
- Árshátíðarnefnd
- ber ábyrgð á skipulagningu árshátíðarviku
- Videonefnd (Pulsan)
- ber ábyrgð á því að gera myndbönd fyrir hönd NST
- Auglýsinganefnd
- ber ábyrgð á auglýsingagerð fyrir viðburði NST
- Málfundarnefnd (Gettu betur og Morfís)
- ber ábyrgð á Gettu betur og Morfís
- Leiklistarnefnd (Desdemóna)
- ber ábyrgð á því að setja upp leiksýningu
- Tækninefnd
- ber ábyrgð á tækjabúnaði og uppsetningu tæknimála á viðburðum NST
- LAN nefnd
- ber ábyrgð á því að halda LAN einu sinni á önn
- Peysunefnd
- ber ábyrgð á innkaupum og sölu á NST peysum
- Hirðljósmyndari
- ljósmyndar viðburði NST fyrir samfélagsmiðla og nst.is