MARS KYNNIR… KLÚ!

,

mars Leik­félag Tækni­skólans kynnir leik­ritið Klú

Leikritið Klú er byggt á morðgátuspilinu Clue. Þýtt og staðfært af Magnúsi Thorlaciusi og Hákoni Erni Helgasyni. Beautybox styrkti þessa sýningu!

Morðingi gengur laus

Morðingi gengur laus! Úti er snjóbylur, ekkert skyggni og mikil ókyrrð. Frú Páfugl, herra Sinnep, Frú rauð, prófessor Plóma, herra Grænn og frú Hvít eru stödd á sveitahóteli. Á hótelinu hefur verið framið morð. En hver er morðinginn?

Sýningartími

Miðaverð er 1000 kr. og sæti eru ekki númeruð. Sýn­ingar fara fram í Tækni­skólanum við Háteigsveg – eða gamla Sjó­manna­skól­anum – í Hátíðarsal skólans sem er á 2. hæð.

Föstudagurinn 21. febrúar kl. 20:00 – Miðasala hér

Laugardagurinn 22. febrúar kl. 20:00 – Miðasala hér

Sunnudagurinn 23. febrúar kl. 19:00 – Miðasala hér


Leikstjóri mARS

Leik­stjóri leik­hópsins er Magnús Thorlacius. Magnús Thorlacius leikstjóri og -skáld útskrifaðist af sviðshöfundabraut frá Listaháskóla Íslands árið 2022 og hefur síðan þá sett upp hin ýmsu verk. Má þar nefna leiksýninguna Skeljar sem var sýnd í Ásmundarsal, Lónið og Þöglar byltingar sem báðar voru sýndar í Tjarnarbíói.

Search

Categories