SUMARBALL

SUMARBALL 

FÁ – BORGÓ – FMOS – TÆKNÓ – FB

Fimmtudaginn 11. apríl verður Sumarball FÁ – BORGÓ – FMOS – TÆKNÓ – FB,  haldið í PORT Reykjavík – eða Kolaportinu Tryggvagötu 19, 101 Reykjavík.

Húsið opnar kl. 22:00 en ekki er hleypt inn á ballið eftir 23:00. Ballinu lýkur kl. 01:00. 

Fram koma: DJ Gugga, Tónhylur, Ezekiel, Young Nigo, Aron Can & Daniil

MIÐASALA – ARMBÖND AFHENT Í NÆSTU VIKU

Miðasölu fyrir nemendur Tækniskólans má nálgast hér: https://yess.is/e/nft/Sumarball%202024. Mánudaginn 8. apríl hefst miðasala fyrir gesti úr öðrum framhaldsskólum en Tækniskólanemendur geta boðið einum gesti með sér. Gestur getur ekki keypt miða nema með kennitölu þess nemanda sem býður honum með. Kennitöluna skráir gestur við miðakaup. Miðaverð er 4.500 kr. fyrir nemendur FÁ, Tækniskólans,  FB, FMos og Borgarholtsskóla en 5.500 kr. fyrir aðra. Takmarkaður fjöldi miða er í boði og gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær. Hér er hlekkur á miðasölu fyrir utanskóla eins má fylgjast með á Instagram reikningi NST (nstskoli) og á vefsíðunni okkar nst.is.

EDRÚPOTTUR – ölvun ógildir miðann!

NST mælir með því að þú upp­lifir lífið edrú. Því fylgja engir gallar, bara kostir. Það má heldur ekki neyta áfengis eða annarra vímugjafa á viðburðum skólans. Slepptu öllu ölæði og taktu meðvitaða ákvörðun um að vera án vímu­efna ♠ Snillingar sem blása í áfengismæli komast í edrúpottinn og geta unnið peningaverðlaun. Einnig er vert að nefna að á ballinu er ekki leyfi­legt að koma inn með tóbak, nikó­tínpúða eða rafrettur. Allur óheimill varn­ingur verður gerður upp­tækur og honum fargað.

ALLT OFBELDI ER ÓLÍÐANDI

Á viðburðum NST er allt ofbeldi ólíðandi. Það þýðir EKKERT umburðarlyndi fyrir t.d. móðgandi eða sær­andi athuga­semdum um útlit fólks, hómó­fóbíu eða kynþátta­for­dómum. Öll hegðun og áreitni sem skapar ógn­vekj­andi eða fjand­sam­legt umhverfi verður ekki liðin.

Sjáumst á ballinu!

Search

Popular Posts

  • Árshátíð Tæknó X MH
    Árshátíð Tæknó X MH

    Þann 12. febrúar er árshátíð Tækniskólans og MH. Árshátíðin verður haldin í Kolaportinu þar sem hinir ýmsu listamenn stíga á svið. Húsið opnar kl 22:00 en ballinu lýkur kl 01:00. Þemað er „Royal“ og það er gaman ef þið klæðið ykkur í takt við það en fyrst og fremst skiptir máli að líða vel! ATH!…

  • Gettu bEtur prufur!

    📚 Gettu betur – Tækniskólinn Tækniskólinn tekur þátt í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskólanna sem sýnd er á RÚV.Við leitum að öflugum einstaklingum til að keppa fyrir hönd skólans skólaárið 2026–2027. ✍️ Hvernig virkar þetta? 📈 Undanfarin ár hefur Tækniskólinn verið í mikilli sókn í Gettu betur – nú er tækifærið til að verða hluti af…

  • Nýnemaball nst 10.september

    Þann 10.september er Disco nýnemaball NST en það verður haldið í Iðnó og hurðin opnast kl 22:00. Izleifur, Ragga Hólm, Aron Kristinn og Issi stíga svið. Ölvun ógildir miðann. Innanskólamiðasala: https://item.salescloud.is/?uuid=2686aa64-b6ad-4527-a29c-782a1f92ca17&channel=fb23b405-ac2b-4a87-ba54-a1a66e531f59&organization=c4c097ac-f400-4325-a2c8-a640fd527ef1&lang=is&time=1788433969614 Utanskólamiðasala: https://item.salescloud.is/?uuid=2686aa64-b6ad-4527-a29c-782a1f92ca17&channel=3ff6f746-2479-41db-9a2d-bb9180c1fd03&organization=c4c097ac-f400-4325-a2c8-a640fd527ef1&lang=is&time=1788792425323

  • Nýnemakvöld á Háteigsvegi 2.september!
    Nýnemakvöld á Háteigsvegi 2.september!

    Miðviku­daginn 2. sept­ember verður sér­stakt nýnem­a­klúbba­kvöld haldið í Tækniskólanum á Háteigs­vegi frá kl. 17:00-19:00. Á kvöldinu fá nýnemar tæki­færi til að kynna fjöl­breytt klúbbastarf skólans, en klúbba­kvöld eru haldin alla miðviku­daga frá kl. 17:00 – 21:00. Full­trúar nem­enda­sam­bands Tækni­skólans, NST, verða einnig á staðnum og hægt verður að skrá sig í nýnemaviðtöl til umsóknar um…

Categories