TROPICAL BALLIÐ!

Nýnemaball Tæknó, Borgó, FÁ, FB og FMOS – Tropical Ballið – fyrsta ball skólaársins fer fram miðvikudaginn 10. september!

🎉 Staðsetning: VÍKIN – Víkingsheimilið, Traðarland 1, Fossvogur
🕙 Tími: Húsið opnaR kl. 22:00, lokað fyrir inngöngu kl. 23:00 – balli lýkur kl. 01:00


Miðasala

🎟️ Miðaverð fyrir Tækniskólanema: 4.990 kr.
🔗 INNANSKÓLA – Hlekkur á miðasölu

Viltu bjóða gesti?

Nemendur geta boðið einni manneskju úr öðrum framhaldsskóla. Gesturinn er á ábyrgð nemandans og þarf að skrá kennitölu viðkomandi við miðakaup.
🎫 Miðasala fyrir gesti opnar föstudaginn 5. september kl. 10:00.
💵 Verð fyrir gesti: 5.990 kr.




Öryggi og umsjón

www.nst.is

Á ballinu verður öflug öryggisgæsla frá GO öryggi, auk heilbrigðisstarfsfólks í sjúkraherbergi á staðnum.
Foreldrum og forsjáraðilum er eindregið bent á að sækja börn sín eftir ballið.

Á ballinu er ekki leyfilegt að koma með:
🚫 Tóbak, nikótínpúða, rafrettur
🚫 Vökva (t.d. ilmvatn eða drykki) – öll slík vara verður gerð upptæk og fargað


Viltu bjóða gesti?

Nemendur geta boðið einni manneskju úr öðrum framhaldsskóla. Gesturinn er á ábyrgð nemandans og þarf að skrá kennitölu viðkomandi við miðakaup.
🎫 Miðasala fyrir gesti opnar föstudaginn 5. september kl. 10:00.
💵 Verð fyrir gesti: 5.990 kr.


Edrúpottur og ábyrg hegðun

NST hvetur öll til að mæta edrú og taka þátt í jákvæðri stemningu.
📍 Þau sem mæta edrú og blása í mæli fara í edrúpottinn, með möguleika á peningaverðlaunum!

🚫 Ölvun ógildir miðann.


Ofbeldi með öllu ólíðandi

Á viðburðum NST er allt ofbeldi ólíðandi. Það þýðir EKKERT umburðarlyndi fyrir t.d. móðgandi eða sær­andi athuga­semdum um útlit fólks, hómó­fóbíu eða kynþátta­for­dómum. Öll hegðun og áreitni sem skapar ógn­vekj­andi eða fjand­sam­legt umhverfi verður ekki liðin.

Search

Categories