
Back to 2000!
Fimmtudaginn 6. nóvember er ball Borgó, Tæknó og FMOS í Gamla bíó, Ingólfsstræði 2a.
Þemað? Y2K💿
Tími: Húsið opnar kl. 22:00, lokað fyrir inngöngu kl. 23:00 – balli lýkur kl. 01:00
Miðasala
🎟️ Miðaverð fyrir Tækniskólanema: 4.990 kr.
🔗 INNANSKÓLA – Hlekkur á miðasölu
Viltu bjóða gesti?
Nemendur geta boðið nemendum úr öðrum framhaldsskóla að kaupa sér miða. Gestir þurfa að skrá kennitölu Tækniskólanemenda sem býður þeim við miðakaup.
🔗UTANSKÓLA – Hlekkur á miðasölu kemur föstudaginn 31. október kl. 10:00
💵 Verð fyrir gesti: 5.990 kr.
Öryggi og umsjón
Á ballinu verður öflug öryggisgæsla frá GO öryggi, auk heilbrigðisstarfsfólks í sjúkraherbergi á staðnum.
Foreldrum og forsjáraðilum er eindregið bent á að sækja börn sín eftir ballið.
Á ballinu er ekki leyfilegt að koma með:
🚫 Tóbak, nikótínpúða, rafrettur
🚫 Vökva (t.d. ilmvatn eða drykki) – öll slík vara verður gerð upptæk og fargað
Edrúpottur og ábyrg hegðun
NST hvetur öll til að mæta edrú og taka þátt í jákvæðri stemningu. Þau sem mæta edrú og blása í mæli fara í edrúpottinn, með möguleika á peningaverðlaunum!
🚫 Ölvun ógildir miðann.
Ofbeldi með öllu ólíðandi
Á viðburðum NST er allt ofbeldi ólíðandi. Það þýðir EKKERT umburðarlyndi fyrir t.d. móðgandi eða særandi athugasemdum um útlit fólks, hómófóbíu eða kynþáttafordómum. Öll hegðun og áreitni sem skapar ógnvekjandi eða fjandsamlegt umhverfi verður ekki liðin.
