Hin árlega nýnemaferð Tækniskólans verður fimmtudaginn 29. ágúst næstkomandi. Farið verður á Stokkseyri og gist á Arthostel eina nótt. Nemendasamband Tækniskólans stendur fyrir ferðinni og heldur utan um skemmtidagskrá.
Farið verður af stað eftir hádegi fimmtudaginn 29. ágúst og komið aftur á hádegi föstudaginn 30. ágúst. Þeir nemendur sem skrá sig í ferðina fá leyfi frá kennslu á meðan á ferðinni stendur. Gert er ráð fyrir því að nemendur mæti í kennslu á fimmtudagsmorgni og eftir hádegi á föstudag.
Lagt verður af stað frá Hafnarfirði kl. 15:00, Skólavörðuholti og Háteigsvegi kl. 15:30. Æskilegt er að allir nemendur mæti með farangurinn sinn í skólann að morgni, en boðið verður upp á að geyma farangurinn í húsnæði skólans. Heimkoma er áætluð kl. 15:00 föstudaginn 30. ágúst og verður hefðbundin kennsla það sem eftir er af föstudeginum.
Hægt verður að geyma farangurinn í skólanum áður en farið er í ferðina.
Þátttakendur þurfa að hafa með sér föt eftir veðri, svefnpoka/sæng, kodda, dýnu/vindsæng, sundföt og svo er öllum frjálst að koma með snarl til að hafa í rútunni og/eða um kvöldið.
Miðasala í ferðina fer fram á vef Nemendasambandsins.
Miðaverð er 3000kr. á mann. Innifalið í verðinu er rútuferð fram og til baka, gisting, pylsuveisla, sundlaugapartý, skemmtidagskrá og morgunmatur.
Allir sem fara í ferðina verða að skila inn leyfisbréfi á eitt af bókasöfnum Tækniskólans, á Skólavörðuholti, Háteigsvegi eða Hafnarfirði.
Nýnemar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt því ferðin er frábær vettvangur til þess að kynnast félagslífi skólans og samnemendum.
Nánari upplýsingar veitir Valdi félagsmálafulltrúi í síma 698-3857 eða tölvupóst á [email protected] og Silja Sif á [email protected]