Vegna óviðráðanlegra aðstæðna hefur aðalfundi NST ásamt kosningum til miðstjórnar NST og stjórna skólafélaga Tækniskólans verið frestað fram á haust með það að markmiði að auka þátttöku í kosningunum og til að gefa frambjóðendum betri vettvang til að kynna framboð sín.
Kosningar munu fara fram í upphafi næsta skólaárs. Hér að neðan má sjá þau félög sem munu halda kosningar í haust:
- Nemendasamband Tækniskólans (NST)
 - Skólafélag Byggingartækniskólans
 - Skólafélag Tæknimenntaskólans (NTM)
 - Skólafélag Skipstjórnarskólans
 - Skólafélag Upplýsingatækniskólans (Eniac)
 - Skólafélag Raftækniskólans (SRS)
 - Skólafélag Handverksskólans
 
Samhliða kosningunum í haust verður einnig auglýst eftir áhugasömum nemendum til að sitja í nefndum og ráðum innan NST.
