Nýnemaferð Tækniskólans
Hin árlega nýnemaferð Tækniskólans verður fimmtudaginn 30. ágúst næstkomandi. Farið verður á Stokkseyri og gist eina nótt. Nemendasamband Tækniskólans stendur fyrir ferðinni og heldur utan um skemmtidagskrá.
Farið verður af stað á hádegi fimmtudaginn 30. ágúst og komið aftur á hádegi föstudaginn 31. ágúst. Þeir nemendur sem skrá sig í ferðina fá leyfi frá kennslu á meðan á ferðinni stendur. Gert er ráð fyrir því að nemendur mæti í kennslu á fimmtudagsmorgni og eftir hádegi á föstudag.
Hægt verður að geyma farangurinn í skólanum áður en farið er í ferðina.
Miðasala í ferðina fer fram á vef Nemendasambandsins og verður send valkvæð rukkun á alla nemendur í gegnum Aur.
Miðaverð er 3000kr. á mann. Innifalið í verðinu er rútuferð fram og til baka, gisting, pylsuveisla, sundlaugapartý, skemmtidagskrá og morgunmatur.
Allir sem fara í ferðina verða að skila inn leyfisbréfi til Valda félagsmálafulltrúa. Hægt er að skila því í tölvupósti á [email protected], í stofu S114 á Skólavörðuholti eða á skrifstofu skólans (á Háteigsvegi, í Hafnarfirði og á Skólavörðuholti).
Nýnemar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt því ferðin er frábær vettvangur til þess að kynnast félagslífi skólans og samnemendum.
Nánari upplýsingar veitir Valdi félagsmálafulltrúi í síma 698-3857 eða tölvupóst á [email protected]