Nýnem­aferð Tækni­skólans 2019

Hin árlega nýnem­aferð Tækni­skólans verður fimmtu­daginn 29. ágúst næst­kom­andi. Farið verður á Stokks­eyri og gist á Art­h­ostel eina nótt. Nem­enda­sam­band Tækni­skólans stendur fyrir ferðinni og heldur utan um skemmti­dag­skrá.

Farið verður af stað eftir hádegi fimmtu­daginn 29. ágúst og komið aftur á hádegi föstu­daginn 30. ágúst. Þeir nem­endur sem skrá sig í ferðina fá leyfi frá kennslu á meðan á ferðinni stendur. Gert er ráð fyrir því að nem­endur mæti í kennslu á fimmtu­dags­morgni og eftir hádegi á föstudag.
Lagt verður af stað frá Hafnarfirði kl. 15:00, Skólavörðuholti og Háteigs­vegi kl. 15:30. Æskilegt er að allir nem­endur mæti með far­ang­urinn sinn í skólann að morgni, en boðið verður upp á að geyma far­ang­urinn í húsnæði skólans. Heim­koma er áætluð kl. 15:00 föstu­daginn 30. ágúst og verður hefðbundin kennsla það sem eftir er af föstu­deg­inum.
Hægt verður að geyma far­ang­urinn í skól­anum áður en farið er í ferðina.

Þátt­tak­endur þurfa að hafa með sér föt eftir veðri, svefn­poka/​sæng, kodda, dýnu/​vind­sæng, sundföt og svo er öllum frjálst að koma með snarl til að hafa í rút­unni og/​eða um kvöldið.

Miðasala í ferðina fer fram á vef Nemendasambandsins.
Miðaverð er 3000kr. á mann. Innifalið í verðinu er rútuferð fram og til baka, gisting, pylsu­veisla, sund­laugapartý, skemmti­dag­skrá og morg­un­matur.
Allir sem fara í ferðina verða að skila inn leyfisbréfi á eitt af bókasöfnum Tækniskólans, á Skólavörðuholti, Háteigsvegi eða Hafnarfirði.

Nýnemar eru hvattir til þess að mæta og taka þátt því ferðin er frábær vett­vangur til þess að kynnast félags­lífi skólans og sam­nem­endum.

Nánari upp­lýs­ingar veitir Valdi félags­mála­full­trúi í síma 698-3857 eða tölvu­póst á [email protected] og Silja Sif á [email protected]

NÝÁRSBALL Í GAMLA BÍÓ

KAUPA MIÐA HÉRNA
https://widgets.salescloud.is/i/4084f509-d06c-4c24-9e2e-7ef14031dd11?channel=12474536-1203-4d3b-8fdc-a442960d8c92&language=is

Viltu fagna nýja árinu í stæl?

NFFMOS OG NST KYNNA: NÝÁRSBALL Í GAMLA BÍÓ

Sækið lesgleraugun því línuupið er einum of langt.

BING BONG BÆNG og Brjáluð BEATS

Fram koma:

Stich-Face

Snorri ástráðs

Sprite zero klan+ króli

Þorri

Young nigo drippin

Gvdjon

Ragga hólm

Séra Bjössi

Ballið verður haldið í Gamla Bíó fimmtudaginn 10.Jan frá 22:00-01:00 – Húsið lokar 23:00.

Miðaverð er 3500 fyrir ALLA , alls ekki flókið

KAUPA MIÐA HÉRNA
https://widgets.salescloud.is/i/4084f509-d06c-4c24-9e2e-7ef14031dd11?channel=12474536-1203-4d3b-8fdc-a442960d8c92&language=is

Lasertag mót NST

Föstu­daginn 30. nóv­ember verður Lasertag mót haldið inni í aðalbygg­ingu Tækni­skólans við Skólavörðuholt. Mótið hefst kl. 18:00 og stendur yfir til kl. 21:00.

Þátt­töku­gjald er EKKERT og verður keppt í 5 manna liðum.

ÞAÐ VERÐUR PIZZA Á SVÆÐINU BING BONG BÆNG

SKRÁNING HÉRNA
https://goo.gl/forms/1IHdQOABxQy7nD7h2