Kubburinn 2 | 2022

Dagana 30. september til 2. október verður Kubburinn 2 | 2022 haldinn í íþrótta­húsinu Digra­nesi.

Viðburðurinn er haldinn í sam­starfi við FB, Tuddann og RÍSÍ. Skráning fer fram á 1337.is og kostar 5.000 kr. á mann. Keppt verður í CS:GO, League of Leg­ends, Rocket League, Overwatch, StarCraft, Val­orant, Minecraft, Tekken, Super Smash Bros og fleiri leikjum. Heild­arverðmæti vinn­inga er yfir 400.000 kr.

Allir þátt­tak­endur sem eru yngri en 18 ára þurfa að skila leyfisbréfi þegar mætt er á LANið.

Eins og allir viðburðir NST er Kubburinn er áfengis-, vímu­efna-, rafrettu- og tób­ak­slaus viðburður og varðar neysla þessara efna við brottrekstur.

Nýnemaball Tæknó, Borgó og FÁ

Fyrsta ball vetrarins, Nýnemaballið, verður haldið á Spot í Kópavogi í samvinnu við nemendafélög Borgarholtsskóla og Fjölbrautarskólans við Ármúla fimmtudaginn 8. september næstkomand. Húsið opnar kl. 22:00 og verður gestum ekki hleypt inn eftir kl. 23:00. Ballinu lýkur svo kl. 01:00.

Fram koma:
VÆB
DJ Ragga Hólm
Inspector Spacetime
Stuðlabandið
Sigga Beinteins
Birnir

Innanskóla miðasala er hafin, en fyrsta sólarhringinn getua eingöngu nýnemar keypt miða.
2. september kl. 10:00 opnar miðasalan svo fyrir aðra nemendur Tækniskólans, FÁ og Borgarholtsskóla.
Miðasala fyrir gesti utan skólanna sem halda ballið opnar svo kl. 10:00 mánudaginn 5. september.

Miðaverð er 4000 kr. fyrir innanskólanema (nemendur í Tæknó, Borgó eða FÁ) en 5000 kr. fyrir aðra gesti.

Nýnemaferð Tækniskólans

Í upphafi hvers skólaárs býður NST (Nemendasamband Tækniskólans) nýnemum upp á skemmtilega dagsferð þar sem nýjum nemendum skólans gefst tækifæri á að kynnast hvort öðru og félagslífi skólans með skemmtilegri dagskrá og leikjum.

Að þessu sinni er ferðinni heitið á Stokkseyri þar sem boðið verður upp á fimm smiðjur. Eftir fyrstu tvær smiðjurnar verður boðið upp á pizzaveislu frá Domino’s í boði NST.

Smiðjurnar sem verða í boði eru:
– Bubblubolti
– Spilasmiðja
– Kajak
– Leikjasmiðja
– Draugasetrið

Enginn er neyddur til þess að taka þátt í neinu sem viðkomandi vill ekki taka þátt í.

Allir nemendur sem fara í nýnemaferðina fá leyfi frá kennslu meðan á ferðinni stendur. Aðrir nemendur þurfa að mæta skv. stundaskrá.
Miðaverð í ferðina er 5000 kr.

Auk skemmtidagskrárinnar verða fulltrúar stjórnar og nefnda NST á staðnum til þess að kynna fjöbreytt félagslíf skólans og að taka við skráningum nýnema í nefndir og ráð.
Fulltrúar peysunefndar verða einnig á staðnum að selja NST peysur og annan varning.
Loks verður opnað fyrir miðasölu á Nýnemaball Tæknó, Borgó og FÁ í ferðinni og fá nýnemar forgang til miðakaupa í einn sólarhring.

Hér má finna miðsölu í nýnemaferðina.
Miðasalan lokar þriðjudaginn 30. ágúst kl. 13:30 og verður ekki hægt að kaupa miða eftir þann tíma.